Lady Bögg
Nostalgían
30.12.2009 21:47:54 / Lady Bögg

Upplausn á Alþingi.....

Frökenin hefur fylgst með Alþingi í dag.

Í allan morgun og fram eftir degi var verið að setja fund og fresta honum jafnóðum.  Þetta var pínlegt að horfa á.  fresta um 30 mínútur, 15 mínútur, þrjú korter, ..... 
Í ljós kom að þingmenn voru að bíða eftir pappírum sem Alþingi hafði beðið um til að varpa ljósi á ákveðin mál.  
Þegar kom í ljós að pappírararnir voru ...  a) vita meinlausir (að áliti stjórnarliða) en ... b) þörfnuðust útskýringa og umræðna (að áliti stjórnarandstöðu) var ákvað stjórnin að hefja fund og halda áfram umræðum.  Stjórnarliðar sögðu að það þyrfti ekki að velta þessum gögnum fyrir sér, þar væri ekkert nýtt,  en stjórnarandstöðu þótti ástæða til að biðja um frekari frestun á fundum til að fá örlítinn tíma til að skoða gögnin.
Fyrirspurn um frestun var ekki einu sinni svarað og áfram skildi fundað !!!  Þegar í ljós kom að stjórnarandstöðu var alvara með að vilja frestun til að skoða þessa pappíra sem enn voru að berast, fann forseti lausina,  skrifa til Bretlands og banna að senda meiri gögn!!!!!!!   
Umræðurnar fóru síðan fram og fólk var að lesa upp úr e-mailum sem það hafði ekki séð áður,  ýmist á íslensku eða ensku og sumum var meira að segja gefið að sök að hafa farið með rangt mál af því að sá sem sakaði hafði ekki séð e-mailinn sem hinn hafði undir höndum.

Frökenin sver og sárt við leggur að annan eins farsa hefur hún ekki séð í neinu leikhúsi !!  og þykir sárt að þurfa að horfa upp á þessa niðurlægingu Alþingis sem boðið var upp á í sjónvarpinu í dag. 

Hefði nú ekki verið hægt að segja bara ...  ok, við skulum fresta fundi í smá stund og gefa öllum tíma til að skoða gögnin og svo hefjum við umræður aftur og munum svara spurningum sem upp kunna að koma ...... 
Þannig hefði mátt slökkva á sjónvarpsvélunum og forða almenningi frá því að þurfa að horfa upp á þessa hörmung og niðurlægingu okkar æðstu stofnunar.    Svo hefði bara mátt kveikja aftur þegar fólk var orðið sammála um að taka upp þráðinn.

Frökenin fær ekki séð að það sé ríkisstjórn..  (hvaða stjórn sem er) til framdráttar að láta almenning horfa upp á skrípaleik bara af því að stjórnin ræður og það skal talað.   Auðvitað eru menn ekki sammála og stundum þarf að brýna raust og vera fylginn sér og tala sínu máli ....  lengi  og stundum oft. 

Alþingi er okkar æðsta stofnun og ber virðing sem slík. En svona skrípaleikur eins og sá sem  fram fór í dag verður einungis til að rýra virðingu Alþingis.

Bögg

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.12.2009 12:17:34 / Lady Bögg

Valkvíði ársins !!!

Rás 2 er að velja mann ársins !!    
Fólk tilnefnir annað hvort einhverja sem hafa þótt sýna framkomu til fyrirmyndar eða þennann og hinn sem hefur átt sinn hlut í að bjarga landinu á krepputíma ....

Og þá kemur spurningin  Hvað er kreppa ??  
Auðvitað eru það margir sem hafa það skítt og enn fleiri núna þegar eru erfiðir tímar.  Það er alltaf sárt og yndislegt til þess að vita að til eru samtök, einstaklingar og fyrirtæki sem sinna eftir bestu getu að styðja þetta fólk.

En það er eiginlega hinn hópurinn sem veldur mestum áhyggjum.   Hópurinn sem er ekki enn búinn að fatta að það er samdráttur í þjóðfélaginu, vill ekki fatta það !

Valkvíðasaga ársins er tileinkuð þessum hópi og þarfnast eiginlega ekki útskýringa.  Tvær konur, vinkonur eða mæðgur, ganga inn í verslun og eru að velja fatnað eða skó fyrir aðra þeirra.    Sú er mest skotin í tveimur eintökum sem bæði kosta ca 30.000 og getur eiginlega ekki valið á milli. 
Hin konan er ekki lengi að finna lausnina......   Taktu bara bæði !!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.12.2009 18:09:13 / Lady Bögg

This and that......

Strange,  I didn´t notice until last night, when I heard the wind start up and looked out to the hospital lawn to check on the christmas tree.....  that it wasn´t there.  It was never put up this season....  one way of saving money in Iceland.
But this lady isn´t saving on christmas lights,  I´ve got more this year than last year.  Finished all the deccorations more than a week ago!! 

Now that I have all the time in the world, you would think that I´ve done everything and more ... and in good time, but I haven´t.

Sent of the "foreign" christmas cards today three days too late !!  Now it´s just up to how efficient the postal workers are, if they get where they are going, in time !!

I´ve started buying pressies but haven´t finished and some of them I have to send up north so they really have to be ready in time......

I thought I´d finished all deals for my birthday party but it seems I have to work on it some more...  it´s the food departement and my budget that needs a bit more work!! 

December has been nice.   A lot of meet-ups and get-togethers with friends and family.  The weather has been mostly on the + side appart from the first 3 days and today.  It´s been strange reading about snow storms every where else while sitting in +12°C up in Iceland.

Really need to write some more cards....  but first I need a bit of a nap!!
:-)
Bug


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.12.2009 19:33:55 / Lady Bögg

A heroes tale - svaðilfarir í skammdeginu

The Lady set off for work, early afternoon to the next town. 
After checking the weather and road conditions very thoroughly it was decided to give it a go.   The wind gusts were up to 25m/sec but the roads were supposed to be clear.    They forgot to tell her that the wind was actually blowing the snow across the road and sometimes it was quite blinding even though it was in broad daylight.  But going there was in fact sort of ok.  It only took about 35 minutes in sted of the usual 25/30 min..    :$
Teaching was fun, and when the lessons were over it was time to set off again. 
It was 16.25 and daylight was going fast!!   The first 5 minutes were just fine but then it started to go a bit blind.   Snow was still being blown across the road and in the twilight and dark it actually went totally blind. 
Most of the time she had to go by the yellow sticks,  one by one, sometimes the lines in the middle of the road also helped,  but quite a few times the view was less than nothing and sometimes she even had to stop by one of the sticks and wait until she got a glimps of the next one. 
To add to the terror she found out that the road that was supposed to be clear was indeed glased over with ice. 
Once when she had stopped to wait for a glimps of the next stick she found out she had actually slid across the road into the next lane and was sitting there, crossing the lane for oncomming cars!!!  8|  Thankfully there were few cars around and none was affected by that slightly lost car!!
The poor lady was way slower than any body else and those that didn´t have the patience took chances and overtook the little silver buggy.  Trying to hang on to their rear lights was quite impossible for the nervous little lady!!  She did however catch up with them at one time cause the traffic had stopped because a big trailer was more or less across both lanes!!
But she made it home.... at last after 50 minutes of pure terror!!   
She has to make the same trip tomorrow but she won´t be doing that if the weather is still the same.

Í kvöld situr frökenin heima hjá sér og sötrar Egils malt og appelsín og reynir að róa taugarnar  8)

Lady Bögg
 

» 1 hafa sagt sína skoðun

01.12.2009 21:04:58 / Lady Bögg

Aðventa !

Þessir síðustu dagar hafa verið vægast sagt viðburðarríkir fyrir frökenina!  :)

Þess er fyrst að geta að tímabundið er hún að kenna íslensku í Borgarnesi.  Það er verkefni sem klárast 10. desember og ekur frökenin nú fyrir Hafnarfjallið á miðvikudögum og fimmtudögum og stundar þessa iðju í þrjár kennslustundir hvorn dag.  Vel er lesið á alla vindmæla áður en akstur hefst !!  8|

En fimmtudagin 26. nóvember lauk haustnámskeiði Jafnréttishúss og Vinnumálaskrifstofu fyrir atvinnulausa útlendinga á Akranesi.  Verður að viðurkenna að sumir eru þó nokkuð liðugri í íslenskunni eftir námskeiðssetuna og margir sýndu góðan áhuga.   Frökenin var leyst út með gjöfum    ;)      en spurningin er kannski hvort nemendurnir hafi verið svona fegnir að losna við kennarann.
Það er því eingöngu verið að kenna sex tíma á viku næstu tværi vikurnar og svo tekur við óvissan og atvinnuleysið á nýjan leik....  eiginlega má segja að það tímabil sé þegar hafið !!   :$

Útskriftargjafirnar urðu til þess að hitt og þetta var til í kotinu sem koma þurfti í lóg og voru dögurðar vinir því til kallaðir til á föstudagskvöldið.   Vel gekk á allar birgðir í mat og drukk og mikið spjallað.   Afskaplega kósí kvöld.  :lol:

Nú,  á laugardaginn var ekið í Fjörðinn til móts við þar búandi og fjölskylduna af Norðurlandinu sem var í örlitlu helgarfríi.   

Á sunnudagsmorgun var haldið í messu í Hafnarfjarðarkirkju þar sem verið var að vígja nýtt barokk orgel.   Litla systir og mágur voru þar að syngja, bæði með og án Barbörukórsins.  :)

En aðal tilgangur orlofs þeirra norðan-búandi hjóna var að mæta á tónleika Fjallabræðra sem kyrjuðu frá hjartarótunum í Háskólabíói á sunnudagskvöldið.  Þangað fór frökenin líka.
Mikið ÓTRÚLEGA var gaman.   Þarna er sko frumkrafturinn vaðandi upp um alla veggi!!
Diskurinn var auðvitað keyptur og hljómar nú á fullu blasti við hvert tækifæri !!   :haha:

Litla systir varð fertug í gær og við mættum í þetta líka fína vöflukaffi á Arnarhraunið og áttum ljúfa kvöldstund með góðu fólki.

Og þar með er langri helgi lokið.  Aðventan er hafin.   Aðventuljósið er komið út í eldhúsglugga og hægt og rólega mun jólað í húsinu á horninu þessa vikuna.

Vinnuvikan hefst á morgun, eftir hádegi ....   það er bara að vona að vindurinn fari ekki upp fyrir 30 metra á sekúndu við Hafnarfjallið......  8|

Lady  Bögg

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.10.2009 11:04:30 / Lady Bögg

Mánudagur

Frökenin ætti að vera við kennslu en er heima eftir afskaplega tuskulegan sunnudag.
Heldur helst að hún hafi náð sér í illvíga matareitrun á laugardagskvöldið.  Aðfaranótt sunnudags og allur sunnudagurinn fór fyrir lítið.  MagaKVALIR, hiti og almennur eymingjaskapur.

Fyrir vikið missti frökenin af tónleikum Barbörukórsins og einnig af girnilegu matarboði í höfuðstaðnum.

En nú er sem sagt allt á uppleið og vonast er til að frökenin geti byrjað að borða þegar líður á daginn.

Umrædd kennsla er íslenskukennsla fyrir atvinnulausa útlendinga.  Kennt er í Svövusal í nýja bókasafninu og þar fer vel um nemendur og kennara.

Stormurinn kom og fór um helgina og enn á ný blæs hressilega um gluggann en í þetta sinn í glaða sólskini.  Þrátt fyrir eymingjaskapinn virðist þetta ætla að verða hinn ágætasti dagur.

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.10.2009 21:02:40 / Lady Bögg

Beðið eftir stormi!!

Hún situr við gluggann og bíður eftir stormi.

Vindurinn fór hratt í dag en hefur nú róast ögn...  í bili.    :$
Fræðingar segja að nóttin verði hvöss og morgundagurinn líka.  
Blómapottarnir eru enn á tröppunum en hafa þó verið færðir inn í skot. 
Erlendir nemendur frökenarinnar voru fræddir um veðurspána í íslenskutímum í dag og þeim bannað með öllu að reyna að komast til Borgarinnar á morgun!!  Ekki var laust við að sumir sypu hveljur við þennan fyrirlestur  :!:

Frökenin hefur tekið að sér að vera miðasölustúlka á tónleikum Barbörukórsins í Hafnarfjarðarkirkju á sunnudag.  Hún er samt spenntari fyrir tónleikunum sjálfum  en hlutverkinu þar sem litla systir og einka-mágur eru meðlimir í Barböru  :)

Frökenin lét líka sjá sig á nýjum og endurbættum Skrúðgarði í eftirmiðdaginn og fékk ljúffengan Sviss-Mokka og marengstertu sem bráðnaði í munni. 

Hún situr við gluggann með nýtt hár.  Gráu hárin hurfu í dag og var greitt vel fyrir að láta sig hverfa   8|

Góður dagur og hún situr við gluggann og bíður eftir storminum ...

Bögg

» 2 hafa sagt sína skoðun

05.10.2009 08:33:28 / Lady Bögg

5. október.

8:20   Frökenin er vöknuð, búin að taka vítamínin,  "statusa" sig á fésbókinni, senda eitt sms og taka símtal. 
Fyrir utan gluggann hennar er fólk að koma sér af stað til verka dagsins.  Sólin skín á haustlitina og í trénu situr svartþröstur og syngur.  Hún opnaði meira að segja gluggann til að heyra betur í honum.
Það er friður á mánudagsmorgni.   :)

11.45  Þetta hefur eiginlega verið OF friðsamur morgun...  Nú verður frökenin að fara að taka sig á og taka til hendinni !!  :$

12.45  Það örlar á framtakssemi.  Búið að tæma einn ruslaskáp og afraksturinn er tveir stórir pokar af plastpokum  8|   Núðlusúpan tilbúin og etin og nú er að athuga hvort orkan eykst enn eða lekur bara út....... 

Seinna;  Dagurinn leið,  umferðin fyrir utan gluggann hefur verið jöfn og áfallalaus.  Línudansinn var ljúfur og frökenin hefur nú náð tökum á einum sex dönsum !!!  :haha:

Eldhúsdagsumræður hljóma úr sjónvarpi og útvarpi og ef sjónin svíkur ekki þá er hríðarfjúk á gluggum Alþingis  í henni Reykjavík.

Guð blessi Ísland !

Bögg

» 2 hafa sagt sína skoðun

20.09.2009 16:22:09 / Lady Bögg

Í þjónustu H-eldri!

Þjónusta við H-eldri hefur dregið frökenina út um víðan völl og stundum dilk á eftir sér !!

Í þetta sinn hefur verið farið á Norðurlandið.
Heimahagar og ættaróðul og nostalgían flýgur.  Einkum þó um æðar föðurins og frænkanna tveggja sem einnig mættu á svæðið.  Þær eru líka H-eldri   :)
Úr þessu hefur orðið hin ljúfasta og skemmtilegasta samvera, eins konar hluta-ættarmót með þátttöku þriggja ættliða.

Eitthvað verður staldrað hér á Norðurlandinu.  Í þjónustu-hléum grípur frökenin í hekl og lestur.  
Tölvuvakt og viðvera er hér með allt öðrum brag en heima því hér er næstum að maður tekur númer og bíður í röð.   Húsbóndinn rekur mafíu mikla og tímafreka á fésbókinni og frúin er umsetin af vinum sem þarf að sinna og svara. 

Þessi kapítuli var skrifaður á sunnudagseftirmiðdegi;  Húsbóndinn á fótboltavakt einhvers staðar í öðru húsi,  frúin upptekin við lestur hábókmennta,  sá H-eldri situr í eldhúsinu og spilar ASNA við sonardótturina og sú H-eldri fær sér kríu.
Frökenin sat við hekl, sofnaði rétt si sona ofan í handverkið en reis upp um stund til að skrásetja.

Sunnudagur til sælu.

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.09.2009 17:25:09 / Lady Bögg

Fimmtudagur

Morguntíminn.   (skrifað fyrir kl. 9.00)
Vaknaði fyrir löngu en sit á náttfötunum við gluggann minn (tölvuna )  og horfi á lífið fyrir utan gluggann.
Bæjarstarfsmaður að tína upp allt rusl ... mikið gott að sjá götuna verða skínandi fína.

Undirspilið er hann Biggi minn, Situations í útvarpinu :-) 
Það er lika gott þegar maður sér og heyrir gamla nemendur gera góða hluti. 
Hugsandi er að reyna að kíkja á tónleikana hans á Dillon, 18. október.   :-)

Svo er að klæða sig, fá sér smá jarðarberjagraut  og brjóta þvott og setja í þvottavél......  
Og aftir pissar niður fyrir utan gluggann.  En það er allt í lagi því gatan er hrein og alltaf birtir til um síðir.

Seinna -  Kaffi og dönsk bananarúlluterta!!!
Og svo er tekið úr þvottavélinni  :haha:  og hlustað á nýtt frá Leaves

Þó nokkru eftir hádegi. :!:
Þrátt fyrir góðan skammt af kaffi tókst frökeninni ekki að halda sér vakandi og fékk sér smá kríu á meðan History channel sýndi afskaplega fróðlegan þátt um helstu tegundir og stærstu eldfjöll á jörðu.  Góður partur þar frá Íslandi.

Það rignir enn og aftur á gluggann,  smá hrollur og fínt að eiga flísu og hlýja sokka sem koma ylvolgir beint af ofninum !!

Og nú er hún aftur sest við gluggann.
Þeirri hugsun hefur skoti upp hvort fólk sem kemur auga á hana þarna, haldi að hún geri ekkert annað en að hanga í tölvunni !! 
En þar er reyndar ekki svo ...  ekki alveg ....
Við borðið er nefnilega gott að sitja og hekla. 
Þar er líka gott lesljós og þessa dagana er verið að lesa tvær bækur. 
Leynda kvöldmáltíðin eftir Javier Sierra í þýðingu Tómasar R. Einarssonar og svo hin gamla og góða Heiðarprinsessan,  klassík úr sögusafni heimilanna. 
Reyndar skal nú játað að við borðið er einfalt að fylgjast með því sem gerist í heiminum í gegn um sjónvarp og tölvu og lítið mál að bregðast við því sem vinir og vandamenn setja inn á netið :-)

Það sést að fólk er búið að finna haust-klæðnaðinn.  Húfur og þykkar úlpur eru notaðar fyrir utan gluggann og mikið er krúttlegt að strætóinn okkar tekur fólk uppí og setur fólk út þar sem hentar  :)
Það rignir ekki í augnablikinu.

Það nálgast kvöldmat. 
Búið að taka úr frystinum (kjúklinga-snitsel ) og best að vaska upp áður en bætist í vaskinn.

Í kvöld á að þvo eina eða tvær vélar og kannski verða neglur lakkaðar því ekki er úrval sjónvarpsins glæst !!
Þetta hefur bara verið góður dagur.

Hjón ganga framhjá með tvo litla hunda.  Hvenær kemur minn ??

Bögg

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.09.2009 17:33:15 / Lady Bögg

meira.... ???

Júlí, ágúst, september.....   tíminn líður og ekkert að gerast......  8|

Auðvitað hefur hitt og þetta drifið á daga. 
Virkilega gaman að vinna á bókasafninu, þar er gott fólk,  en því lauk eftir miðjan ágúst.
Síðan þá hafa atvinnuauglýsingar verið eitt helsta lestrarefnið og helstu heimsóknir eru á vinnumálaskrifstofuna.  Þar er líka ágætis fólk :-)

Og svo má ekki gleyma ökutúrunum með þeim H-eldri.   Snæfellsnes, Reykjanes, suðurlandið  jú, og konsertunum....   a.m.k. tveir   :-) 
Já, ætli frökenin hafi ekki bara verið nokkuð bissý  :-)

Eftir skraufaþurrt sumar er komið rennblautt haust.

Göngutúrar (eða eiginlega myndatúrar)  eru fáir í þessu veðri því ekki nennir frökenin allt of oft út þegar allt er "wet and windy" og miklu betra að fara bara í smá bíltúr og taka myndir.

Aðgerðarleysið snýst um að sitja við gluggann og fylgjast með lífinu fyrir utan, hekla.... (ótrúleg framtakssemi ),  lesa bók eða tvær, taka til og þvo þvott = vera húsleg  8)

Svei mér ef frökenin er ekki bara of upptekin til að sinna fésbók, bloggi og tölvuleikjum  ....  eða þannig..  sko   .... :$

En ég er enn að bíða eftir hundinum.......

Bögg
 

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.07.2009 09:08:39 / Lady Bögg

Týnt blogg !!!

Var gjörsamlega búin að týna blogginu !!!   Þurfti að googla  til að finna það!!   Það er aldeilis að fésbókin hefur tekið yfir!!!

Annars er lítið að frétta að frökeninni; 
Júróvision kom og fór með góðum árangri. 
Útlendingar voru útskrifaðir úr íslenskukennslu,  a.m.k. í bili...
Frökenin er orðin "bókasafnskelling"  :-)  og líkar það bara svona endemis vel.  Svo verður framtíðin bara að skera úr með framhaldið.

Jú,  það eru blóm á tröppunum og þau eru vökvuð öðru hvoru!   :$

Ekki hefur nú verið ferðast mikið. 
Skroppið á Krókinn í júní og þar með er sennileg flest upp talið. 

Jú,  Bug-Tours hafa starfað öðru hvoru þetta vor/sumar; 
Effie frá Kýpur var á námskeiði í Borgarnesi í vor og dálítð var "transportað" með hana.
Og nú eru nýfarnir frá landinu Andrej og Istok frá Slóveníu.  Þeir sáu að vísu mest um sig sjálfir og sáu allt og fóru allt sem hægt er en tveir dagpartar fóru í að sýna þeim nágrenni höfuðborgarinnar og Skipaskagann! 

Lady Bögg

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.05.2009 09:32:38 / Lady Bögg

Júróvisíon

Bissý !!  Æfingatími í Moskvu!!
Legið yfir videóum af æfingum,  rosalega mikið vont og jafnvel leiðinlegt!! 
Sumt betra og jafnvel nokkuð gott !!
Mikið hlegið að kjánalegum dönsum og sviðsframkomu!!
Milli-lappa-luft-barrell keppnin að ná hápunkti!!

Bögg



» 2 hafa sagt sína skoðun

27.04.2009 23:08:53 / Lady Bögg

Mistök á opnum fundi um Byggðasafnið !!

 

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.04.2009 17:00:28 / Lady Bögg

Páskarnir alveg, næstum búnir.....

Frökenin er komin heim aftur eftir páskafríið.       Páskafrí....  hmmmm.  Leti og afslappelsi á hæsta stigi.    :$

Skírdagur, heima hjá sér,  hangs og dútl.

Föstudagurinn langi,   heima hjá sér til að byrja með,  hangs og dútl og svo var farið í höfuðborgina, sjálfa Hallgrímskirkju og þar voru Passíusálmar sungnir og lesnir.  Falleg tónlist eftir Jón Ásgeirsson.  Sá 3 kóra og þekkti fólk í þeim öllum - takk fyrir mig    :-) 

Laugardagur er svona "ekki neitt" dagur í páskavikunni.  Göngutúr  niður Laugarveginn í fimbulkulda.  Ekkert nema útlendingar og atvinnu-mótmælendur!!  Leiðinlegt hvað Laugaveginn er að setja niður.........  og einhvernveginn ekki lengur skemmtileg landkynning    :(
Kvöldinu var varið í sjónvarpsgláp  :-)  Sleapless in Seattle, Mary Poppins og Bourn Ultimatum!!  Glæsilegt  !!

Páskadagur,  leti og hangs,   glæsikaffi hjá þeirri H-eldri og síðan glæsikvöldverður í Fjóluhlíðinni.  Geitakjöt og Lambakjöt með gúmmelaði meðlæti og síðan eftirrétt frá Frú H-eldri!!   nammmmmi !!!  :d

Og síðan dagurinn í dag,  tekinn rólega í byrjun allavega.
Mætti yfir 100 bílum í Hvalfjarðargöngunum og umferðin er enn að þyngjast !!

Húsverk og undirbúningur fyrir morgundaginn og svo byrjar hversdagsleikinn aftur á morgun!!

Bögg

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 24
Heimsóknir
Í dag:  42  Alls: 69508
Dagsetning
21. mars 2010
Klukkan