Lady Bögg
Nostalgían
30.12.2009 21:47:54 / Lady Bögg

Upplausn á Alþingi.....

Frökenin hefur fylgst með Alþingi í dag.

Í allan morgun og fram eftir degi var verið að setja fund og fresta honum jafnóðum.  Þetta var pínlegt að horfa á.  fresta um 30 mínútur, 15 mínútur, þrjú korter, ..... 
Í ljós kom að þingmenn voru að bíða eftir pappírum sem Alþingi hafði beðið um til að varpa ljósi á ákveðin mál.  
Þegar kom í ljós að pappírararnir voru ...  a) vita meinlausir (að áliti stjórnarliða) en ... b) þörfnuðust útskýringa og umræðna (að áliti stjórnarandstöðu) var ákvað stjórnin að hefja fund og halda áfram umræðum.  Stjórnarliðar sögðu að það þyrfti ekki að velta þessum gögnum fyrir sér, þar væri ekkert nýtt,  en stjórnarandstöðu þótti ástæða til að biðja um frekari frestun á fundum til að fá örlítinn tíma til að skoða gögnin.
Fyrirspurn um frestun var ekki einu sinni svarað og áfram skildi fundað !!!  Þegar í ljós kom að stjórnarandstöðu var alvara með að vilja frestun til að skoða þessa pappíra sem enn voru að berast, fann forseti lausina,  skrifa til Bretlands og banna að senda meiri gögn!!!!!!!   
Umræðurnar fóru síðan fram og fólk var að lesa upp úr e-mailum sem það hafði ekki séð áður,  ýmist á íslensku eða ensku og sumum var meira að segja gefið að sök að hafa farið með rangt mál af því að sá sem sakaði hafði ekki séð e-mailinn sem hinn hafði undir höndum.

Frökenin sver og sárt við leggur að annan eins farsa hefur hún ekki séð í neinu leikhúsi !!  og þykir sárt að þurfa að horfa upp á þessa niðurlægingu Alþingis sem boðið var upp á í sjónvarpinu í dag. 

Hefði nú ekki verið hægt að segja bara ...  ok, við skulum fresta fundi í smá stund og gefa öllum tíma til að skoða gögnin og svo hefjum við umræður aftur og munum svara spurningum sem upp kunna að koma ...... 
Þannig hefði mátt slökkva á sjónvarpsvélunum og forða almenningi frá því að þurfa að horfa upp á þessa hörmung og niðurlægingu okkar æðstu stofnunar.    Svo hefði bara mátt kveikja aftur þegar fólk var orðið sammála um að taka upp þráðinn.

Frökenin fær ekki séð að það sé ríkisstjórn..  (hvaða stjórn sem er) til framdráttar að láta almenning horfa upp á skrípaleik bara af því að stjórnin ræður og það skal talað.   Auðvitað eru menn ekki sammála og stundum þarf að brýna raust og vera fylginn sér og tala sínu máli ....  lengi  og stundum oft. 

Alþingi er okkar æðsta stofnun og ber virðing sem slík. En svona skrípaleikur eins og sá sem  fram fór í dag verður einungis til að rýra virðingu Alþingis.

Bögg

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Heimsóknir
Í dag:  44  Alls: 69510
Dagsetning
21. mars 2010
Klukkan