Þetta er þá vinskapur frökenarinnar. 
Fyrsti kommentari, virðist hafa nokkuð gaman af hrakförum hennar og sjá mest eftir því að hafa ekki verið þátttakandi í glæpnum !! Stjáni minn, ert þú alltaf ný-greiddur og málaður á "glæpamyndunum" þínum??? 
Sá/Sú seinni hneykslast á frökeninni og virðist halda að þetta hafi verið af fullum vilja gert!!! Þetta minnir mann nú bara á biblíusöguna um faríseann og tollheimtumanninn og þá fleygu setningu, "þakka þér góður guð að ég er ekki eins þessi þarna" (lesist; ... að ég er miklu betri ... ) 
Það skal tekið skýrt fram að frökenin hyggst halda því fram að myndavélin hafi ekki verið með "fulle femm" í vinnunni þennan morgunin því stórkostlegur vafi leikur á því að bíllinn, og hvað þá með frökenina við stjórn, yfirleitt nái "ólöglegum hraða" við umrædda myndavél. Þar að auki er frökenin afskaplega meðvituð um "leynilögguna" á þessum stað og passar sig vel, svona alla jafna...... 
Annars er frökenin á þeytingi um þessar mundir. Vinna í morgun, akstur með atvinnu-umsækjanda til höfuðborgarinnar í eftirmiðdaginn. Sat alein allt kvöldið í húsi þeira h-eldri því allir aðrir voru uppteknir á tónleikum. "Frídagurinn" á morgun fer í útréttingar fyrir vinnustaðinn, staffafund og svo akstur í borgina aftur seinni partinn þar sem boðið er til "frænkukvölds". Mun reyna að halda seinni frídaginn (þriðjudaginn) heilagan og gera eitthvað skemmtilegt bara fyrir mig...... Vill einhver vera memm??? 